|
21.01.2012 10:20:06 / Ragnar
Vegna snjókomu og skafrennings í Selárdal er Skíðafélagsmótinu frestað og verður það haldið á morgun sunnudag 22. janúar í kl. 11 í Selárdal.
Við minnum á skíðagöngunámskeiðið í tilefni snjódagsins mikla í Selárdal á morgun sunnudag 22. janúar kl. 13-15.
»
20.01.2012 20:42:54 / Ragnar
Skíðafélagsmót með frjálsri aðferð verður haldið í Selárdal á morgun laugardaginn 21. janúar og hefst mótið kl. 12. Startað verður út með 30 sekúndna millibili. Skráning fer fram á staðnum. Keppt verður sömu flokkum og á Skíðafélagsmótinu um síðustu helgi þ.e. allt frá 6 ára og yngri og upp í 65 ára og eldri.
»
19.01.2012 17:29:10 / Ragnar
Alþjóða skíðasambandið FIS stendur fyrir sérstökum degi, „World Snow Day“, þar sem aðildarþjóðirnar eru hvattar til að brydda upp á nýjungum í því augnamiði að hvetja börn til að iðka skíðaíþróttir. Dagurinn er hluti af hvatningarátaki FIS, „Bring children to the snow“, sem staðið hefur í nokkur ár. Verkefnið er hugsað sem samstarfsverkefni SKÍ, skíðafélaga, skíðasvæða og styrktaraðila sem taki höndum saman um að bjóða öllum börnum 12 ára og yngri ókeypis á skíði eða bretti þennan dag, 22. janúar 2012.
Skíðafélag Strandamanna mun leggja sitt af mörkum og bjóða upp á ókeypis kennslu í skíðagöngu fyrir þá sem vilja. Sunnudaginn 22. janúar verður æfing fyrir krakka kl. 11-12.30 í Selárdal eins og æfingatafla Skíðafélagsins segir til um, þangað eru nýir iðkendur að sjálfsögðu velkomnir hvort sem þeir eru félagar í skíðafélaginu eða ekki. Klukkan 13-15 verður boðið upp á kennslu í skíðagöngu fyrir unga sem aldna, byrjendur sem lengra komna og eru allir velkomnir. Lögð verður áhersla á að kenna grundvallaratriðin í hefðbundinni skíðagöngu. Eftir námskeiðið verður þátttakendum boðið upp á kakó og meðlæti í boði Skíðafélagsins. Leiðbeinendur á sunnudaginn verða Ragnar Bragason og Rósmundur Númason og e.t.v. fleiri. Sjáumst hress og kát á sunnudaginn í Selárdal.
»
18.01.2012 22:27:07 / Ragnar
Eftir er að innheimta félagsgjöld í Skíðafélagi Strandamanna fyrir árið 2010 og 2011. Töluvert innheimtist af félagsgjöldum í maí, en það var fyrir árið 2010 og enn eiga nokkrir eftir að greiða félagsgjöldin. Félagar í Skíðafélagi Strandamanna eru beðnir um að leggja þau inn á annanhvorn eftirfarandi reikninga:
Sparisjóður Strandamanna 1161-05-400178 eða Arion banki á Hólmavík 316-26-321 kt. 510100-2120.
Félagsgjöld 2010 17 ára og eldri: 2.000 kr, 16 ára og yngri 1.000 kr.
Í byrjun febrúar verða þau félagsgjöld sem ekki hafa verið greidd innheimt með greiðsluseðli. Félagsgjöld fyrir árið 2012 verða innheimt næsta haust.
»
17.01.2012 23:12:18 / Ragnar
Þá er búið að setja saman mótaskrá vetrarins og er hana að finna hér til vinstri á síðunni. Þar eru dagsett skíðamót sem haldin verða hér á Ströndum og einnig þau mót sem við Strandamenn erum líkleg til þátttöku í. Næsta mót samkvæmt mótaskránni er næstkomandi laugardag en þá er Skíðafélagsmót með frjálsri aðferð. Mótið hefst kl. 12 og verður haldið í Selárdal ef veður leyfir, mótið verður auglýst nánar síðar í vikunni.
»
15.01.2012 22:08:32 / Ragnar
Þá eru úrslitin úr fyrsta skíðamóti vetrarins komin á síðuna. En Skíðafélagsmót með hefðbundinni aðferð var haldið í dag í Selárdal í góðum aðstæðum, frábæru veðri og góðu færi. Sigurvegari í lengstu vegalengd mótsins í karlaflokki var Birkir Þór Stefánsson og fær hann því til varðveislu næsta árið farandbikar sem gefinn var til minnigar um Kjartan Jónsson skipstjóra á Hólmavík. Starfsmenn mótsins fá bestu þakkir fyrir vel unnin störf og keppendur fá þakkir fyrir þátttökuna. Stefnt er að Skíðafélagsmóti með frjálsri aðferð um næstu helgi og verður það nánar auglýst síðar, einnig verður vonandi búið að setja saman mótaskrá vetrarins nú í vikunni.
»
02.01.2012 20:05:22 / Ragnar
Aðalfundur Skíðafélags Strandamanna verður haldinn sunnudaginn 8. janúar 2012 kl. 17 í kaffistofu Hólmadrangs, á dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf. Félagar í Skíðafélaginu eru hvattir til að fjölmenna, einnig eru nýir félagar velkomnir.
»
31.12.2011 17:16:17 / Ragnar
Í dag gamlársdag lagði Rósmundur formaður Skíðafélagsins 3 km spor í Selárdal, að sögn voru þar ágætis aðstæður nýfallinn snjór og gott fatt á multigrade bauk.
»
18.12.2011 19:04:06 / Ragnar
Í dag var lagt spor í Selárdal ca 3 km hringur. Í dalnum eru fínar aðstæður lag af nýjum snjó ofan á gömlum. Veðurspáin næstu daga er ágæt og líkur á að meira bæti á snjóinn.
»
01.12.2011 22:56:48 / Ragnar
Á morgun föstudaginn 2. desember verður fyrsta æfing vetrarins á skíðum haldin í nágrenni við íþróttahúsið og tjaldstæðið á Hólmavík kl. 15-16.30. Æfingin er öllum opin og eru nýir iðkendur sérstaklega velkomnir. Það er vissara að vera ekki á spariskíðunum þar sem sums staðar er stutt á grjótið. Þeir sem vilja vera á tölvupóst- og sms listum vegna skíðaæfinga hafi samband í síma 8933592.
»
05.10.2011 10:13:19 / Ragnar
Um næstu helgi er fyrirhugað að hafa vinnuhelgi í Selárdal, þeir sem geta mætt hafi samband við Rósmund í síma: 8921048
»
02.09.2011 23:34:13 / Ragnar
Uppskeruhátíð skíðafélags Strandamanna var haldin síðastliðinn sunnudag 28, ágúst og var ágætis mæting. Afhentar voru viðurkenningar fyrir ástundun og framfarir og afhent verðlaun fyrir 4 skíðamót sem haldin voru síðastliðinn vetur. 4 krakkar fengu bikar fyrir ástundun en það voru: Númi Leó Rósmundsson, Branddís Ösp Ragnarsdóttir, Stefán Snær Ragnarsson og Hilmar Tryggvi Kristjánsson. Hilmar Tryggvi fékk einnig bikar fyrir framfarir í vetur. Skíðamaður ársins var kosin Harpa Óskarsdóttir, en hún stóð sig frábærlega á skíðunum síðastliðinn vetur, m.a. sigraði hún bæði í göngu með hefðbundinni aðferð og frjálsri aðferð á Andrésar-andarleikunum á Akureyri.
»
26.08.2011 23:41:51 / Ragnar
Uppskeruhátíð vegna skíðaársins 2011 verður haldin sunnudaginn 28. ágúst kl. 18 á Víkurtúni 10. Afhent verða verðlaun fyrir mót vetrarins og viðurkenningar fyrir ástundun og framfarir í vetur, skíðamaður ársins verður kosinn og einnig verða almennar umræður um starfsemi Skíðafélagsins á komandi vetri. Uppskeruhátíðin endar svo á sameiginlegri máltíð þar sem grilluð verða lambalæri.
Fyrsta skíðaæfing skíðaársins verður haldin á undan uppskeruhátíðinni kl. 16-17 á sunnudaginn á nýja planinu milli Hólmadrangs og Hlein, en þar ætlum við á hjólaskíði og/eða línuskauta.
»
29.04.2011 16:07:37 / Ragnar
Gönguhluti Andrésar-andarleikanna var haldinn á Akureyri 26.-28. apríl, þar tóku þátt 10 krakkar af Ströndum og stóðu þau sig öll frábærlega vel. Öll úrslit er að finna á heimasíðu Skíðafélags Akureyrar skíði.is. Alls fengu okkar krakkar 4 gullverðlaun, 3 silfur og 3 brons, en þau hlutu Harpa Óskardóttir sem sigraði bæði í göngu með hefðbundinni og frjálsri aðferð. Númi Leó Rósmundsson var 2. í göngu með hefðbundinni aðferð og 3. í göngu með frjálsri aðferð. Stefán Snær Ragnarsson var 2. í göngu með hefðbundinni aðferð og 3. í frjálsu aðferðinni, Inga Matthildur Karlsdóttir sigraði í göngu með frjálsri aðferð. Friðrik Heiðar Vignisson var 2. í göngu með hefðbundinni aðferð og 1. í göngu með frjálsri aðferð. Hilmar Tryggvi Kristjánsson var í 3.-4. sæti í göngu með frjálsri aðferð. Þetta er án efa langbesta frammistaða okkar á Andrésar-andarleikunum ef talið er í verðlaunum frá því við hófum að taka þátt í leikunum, en samtals höfum við 9 sinnum átt sigurvegara í göngu á leikunum og þar af 4 að þessu sinni. Akureyringar fá bestu þakkir fyrir leikana sem voru glæsilegir og framkvæmdin til fyrirmyndar eins og alltaf.
»
24.04.2011 23:36:48 / Ragnar
Eftir er að innheimta félagsgjöld í Skíðafélagi Strandamanna fyrir árið 2010. Félagar í Skíðafélagi Strandamanna eru beðnir um að leggja þau inn á annanhvorn eftirfarandi reikninga:
Sparisjóður Strandamanna 1161-05-400178 eða Arion banki á Hólmavík 316-26-321 kt. 510100-2120.
Félagsgjöld 2010 17 ára og eldri: 2.000 kr, 16 ára og yngri 1.000 kr.
Eftir 10. maí verða þau félagsgjöld sem ekki hafa verið greidd innheimt með greiðsluseðli. Félagsgjöld fyrir árið 2011 verða innheimt í haust.
»
Síður: 1 2 3 ... 20
|